
Klassísk píla
30 spjöld501, Cricket og hinir leikirnir sem þú þekkir úr sjónvarpinu, á sjálfteljandi Scolia spjöldum. Myndavélar telja stigin, þú einbeitir þér að kastinu.
Mælum með 2-6 á spjald
frá 900 kr. / spjald
Bóka núna
Píla · Karaoke · Pizza · Bar
Klassísk píla, partí píla, karaoke herbergi, heimagerðar pizzur og bar, allt undir einu þaki í Austurbæjarbíói.
Bókaðu spjald á netinu og veldu hvað þið viljið spila lengi. Komdu 10-15 mínútum fyrr til að panta drykki og koma þér fyrir.

501, Cricket og hinir leikirnir sem þú þekkir úr sjónvarpinu, á sjálfteljandi Scolia spjöldum. Myndavélar telja stigin, þú einbeitir þér að kastinu.
Mælum með 2-6 á spjald
frá 900 kr. / spjald
Bóka núna
Grafískir leikir á skjá: flogið til tunglsins, fótbolti, golf og fleira. Engin reynsla nauðsynleg, tölvan sér um reikninginn og við sýnum ykkur hvernig þetta virkar.
Mælum með 2-8 á spjald
frá 2.390 kr. / spjald
Bóka núnaVerð fer eftir degi og tíma: lægst snemma dags og fyrri hluta viku, hæst á föstudags- og laugardagskvöldum. Rétta verðið sérðu þegar þú velur tíma. Tilboð og afslættir leggjast ekki saman.

Karaoke
Prívat herbergi með góðu hljóðkerfi, tveimur hljóðnemum, tveimur skjáum og risastóru lagasafni. Sæti fyrir 8, en það má vera þéttara.
frá 4.990 kr. / herbergi

Hópar & fyrirtæki
Pakkar með pílu, drykkjamiðum og hlaðborði, spjöld hlið við hlið og allt klárt þegar þið mætið. Sendu fyrirspurn og við svörum með tilboði.
frá 3.190 kr. á mann
Jólatilboð fyrir hópaPíla + hlaðborð: 4.990 kr. á mann, sunnudaga - miðvikudaga í nóvember og desemberFærri en 12? Bókaðu spjöld beint og bættu við mat og drykk í bókuninni.
45 eða fleiri, eða viljið þið rýmið út af fyrir ykkur? Þá er betra að leigja sal, og þið hafið frjálsan aðgang að öllum píluspjöldunum. Salarleiga
Pizzurnar eru gerðar frá grunni og kjúklingurinn marineraður tímunum saman. Við þjónum ykkur við spjaldið, svo það þarf aldrei að gera hlé á leiknum. Gleðistund alla daga til kl. 18, og barinn er opinn öllum, líka án bókunar.





Austurbæjarbíó
Bullseye er í Austurbæjarbíói, svo það er stutt frá pílunni inn í sal. Kíktu í pílu, karaoke eða pizzu áður en tónleikarnir eða uppistandið byrjar.
Pílukvöld, karaoke eða pizza og bjór. Gjafabréfið berst strax í tölvupósti.