Fara beint í efni
Veggverk í Diskó herberginu

Karaoke

Við elskum karaoke

Tvö prívat karaoke herbergi. Syngdu af hjartans list fyrir uppáhalds fólkið þitt í flottustu karaoke herbergjum landsins (að okkar mati).

frá 4.990 kr. / herbergi

Bóka karaoke
2Prívat karaoke herbergi
8Sæti í hvoru herbergi, en það má vera þéttara
2 + 2Hljóðnemar og skjáir í hverju herbergi
ÞjónustaPantaðu mat og drykki í herbergið

Herbergin

Þú bókar karaoke herbergi og við úthlutum herberginu eftir því hvað er laust. Áttu þér uppáhald? Skrifaðu það í athugasemd við bókunina og við reynum að verða við því, en getum ekki lofað því, til dæmis ef viðburður er í húsinu.

Diskó herbergið með glitrandi vegg
Stórt veggverk af konu með diskókúlugleraugu

Neðri hæð

Diskó herbergið

Glitrandi veggir og pallíettur þar sem diskódrottningin ræður ríkjum. Diskóveggur, diskókúla og diskóljós, tveir hljóðnemar með standi, tveir skjáir og hljóðkerfi sem lætur röddina þína skína.

Drama herbergið, rautt með velúr bekkjum
Rauð flauelstjöld og hljóðnemi

Efri hæð, Silfurtungl

Drama herbergið

Mjúkt flauel, ofvaxin mynstur og seventies dive drama í rauða rýminu. Diskókúla, rauðir velúr bekkir, rautt retro veggfóður, tveir hljóðnemar, tveir skjáir og frábært hljóðkerfi.

frá 4.990 kr. / herbergi

Verð fer eftir degi og tíma: lægst fyrr á daginn og fyrri hluta viku. Þú velur lengdina og sérð rétta verðið í bókuninni. Tilboð og afslættir leggjast ekki saman. Hópur á leiðinni? Karaoke má bæta við hópapakka, sjá hópar.

Bóka karaoke