Bullseye
Skilmálar og húsreglur
1 Almennar bókanir (píluspjald, karaoke herbergi)
Mæting: Vinsamlegast mætið 5-10 mínútum áður en leiktími hefst til að skrá ykkur inn og fá leiðbeiningar. Ef hópur mætir meira en 20 mínútum of seint er spjaldið/herbergið sjálfkrafa opið fyrir bókanir í kerfinu og ekki er hægt að tryggja að það verði laust þegar gestur mætir.
Afbókanir: Hægt er að afbóka með að minnsta kosti 48 klukkustunda fyrirvara og fá fulla endurgreiðslu. Sé afbókað 12-48 klukkustundum fyrir upphaf bókunar er 50% endurgreitt. Eftir það eru bókanir ekki endurgreiddar.
Breytingar: Hægt er að breyta bókunum án endurgjalds allt að 4 tímum fyrir upphaf bókunar. Eftir það er ekki hægt að breyta bókun.
Ekki mætt: Ef gestur mætir ekki er engin endurgreiðsla veitt.
Ekki er tekið við breytingum eða afbókunum í síma, skilaboðum eða tölvupósti. Nauðsynlegt er að smella á hlekk í staðfestingarpósti og breyta eða afbóka í gegnum bókunarkerfið.
2 Hópabókanir (píla/karaoke, drykkir og/eða hlaðborð)
Afbókanir hópa: Hægt er að afbóka með fullri endurgreiðslu allt að 48 tímum fyrir upphaf bókunar. Sé afbókað 12-48 klukkustundum fyrir upphaf bókunar er 50% endurgreitt. Eftir það eru bókanir ekki endurgreiddar.
Breytingar á hópabókunum: Hægt er að breyta bókunum án endurgjalds allt að 8 tímum fyrir upphaf bókunar. Eftir það er ekki hægt að breyta bókun og full greiðsla verður innheimt samkvæmt bókunarupplýsingum í kerfinu.
3 Reglur og hegðun
Aldurstakmark: Bullseye er með 20 ára aldurstakmark eftir kl. 21:00.
Áfengi: Einungis er leyfilegt að neyta áfengis sem keypt er á staðnum.
Öryggi: Við áskiljum okkur rétt til að vísa fólki frá eða hætta þjónustu ef gestir eru sýnilega mjög ölvaðir eða sýna ógnandi hegðun. Í slíkum tilfellum er engin endurgreiðsla veitt.
Skemmdarverk: Gestir bera ábyrgð á hvers kyns viljandi skemmdum á píluspjöldum, skjám eða karaoke búnaði.
4 Greiðslur og endurgreiðslur
Greiðslur: Allar netbókanir þarf að greiða að fullu við bókun nema um annað sé samið (t.d. fyrirtækjareikningar). Hópabókanir krefjast 50% innborgunar og eru rukkaðar að fullu eftir að leyfilegur breytingartími er liðinn.
Afgreiðsla: Endurgreiðslur eru lagðar inn á sama kort og greitt var með og getur það tekið 3-5 virka daga að birtast á reikningi.
5 Ábyrgð
Force majeure: Ef Bullseye þarf að aflýsa bókun vegna aðstæðna utan okkar stjórnar (t.d. veikinda starfsfólks, bilunar í búnaði eða rafmagnsleysis) verður bókun annaðhvort endurbókuð eða endurgreidd að fullu.
Persónulegir munir: Bullseye ber ekki ábyrgð á týndum eða skemmdum persónulegum munum gesta.