Hafa samband
Spurt og svarað
Bókanir og mæting
Þarf ég að bóka fyrirfram?
Við mælum með því, sérstaklega um helgar. En það er sjálfsagt að kíkja við og athuga hvort það sé laust, og barinn er opinn öllum.
Hvernig breyti ég bókun eða afbóka?
Í staðfestingarpóstinum: smelltu á „nánar um pöntun“ og svo „Hætta við bókun“. Þú getur líka breytt bókun í Sinna appinu. Við tökum ekki við breytingum eða afbókunum í síma, skilaboðum eða tölvupósti. Afbókað með 48 klst. fyrirvara fæst full endurgreiðsla, sjá skilmála.
Hvernig bóka ég fyrir hóp?
Fyrir færri en 12 er einfaldast að bóka spjöld og karaoke herbergi beint. Fyrir 12 eða fleiri sendir þú fyrirspurn á hópasíðunni eða línu á hopar@bullseye.is.
Hvað ef við mætum of seint?
Mætið 10-15 mínútum fyrr til að panta drykki og koma ykkur fyrir. Ef þið mætið of seint styttist leiktíminn sem því nemur, þar sem aðrar bókanir gætu verið á eftir.
Er aldurstakmark?
Já, 20 ára aldurstakmark er eftir kl. 21.
Leikurinn
Þurfum við að kunna eitthvað í pílu?
Nei. Partí pílan er hönnuð fyrir byrjendur og tölvan sér um allan reikning. Við sýnum ykkur hvernig þetta virkar áður en þið byrjið.
Hvað komast margir að hverju spjaldi?
Við mælum með 2-6 manns á spjald svo allir fái sem mest út úr leiknum, en það mega vera fleiri. Stærri hópar bóka spjöld hlið við hlið.
Eruð þið með karaoke?
Já, tvö prívat karaoke herbergi. Sjá karaoke síðunni.
Matur og drykkur
Má koma með eigin veitingar?
Nei. Við erum með matseðil (pizzur, kjúkling, nachos og fleira) og vel búinn bar, sjá matseðlinum. Einungis má neyta áfengis sem keypt er á staðnum.
Er hægt að panta á meðan við spilum?
Já, við þjónum ykkur við spjaldið, svo þið þurfið aldrei að gera hlé til að panta næsta hring eða pizzu.
Tapað og fundið
Ég týndi einhverju, funduð þið það?
Kíktu til okkar á opnunartíma og spurðu starfsfólkið.