Fara beint í efni
Hópur í pílu á Bullseye

Hópar & fyrirtæki

Hópurinn á Bullseye

Pakkar fyrir 12 eða fleiri: píla, drykkir og hlaðborð, spjöld hlið við hlið og allt tilbúið þegar þið mætið.

Jólatilboð fyrir hópa: Píla + hlaðborð, 4990 kr. á mann

Tímabundið tilboð

Jólatilboð fyrir hópa

Píla + hlaðborð

4.990 kr. á mann

Sunnudaga - miðvikudaga í nóvember og desember, fyrir 12 eða fleiri. Partí píla og veglegt hlaðborð. Gildir ekki með öðrum tilboðum.

Bóka jólatilboðið

Hópapakkar

Hópar spila alltaf partí pílu, sem hentar öllum, líka þeim sem hafa aldrei kastað pílu. Verð á mann með VSK og fer eftir degi og tíma.

Píla & drykkir

  • Partí píla
  • 2 drykkjamiðar á mann
1 klukkustund
frá 3.190 kr.
2 klukkustundir
frá 3.590 kr.

Píla & hlaðborð

  • Partí píla
  • Veglegt hlaðborð
Á mann
frá 4.690 kr.

Píla, drykkir & hlaðborð

  • Partí píla
  • 2 drykkjamiðar á mann
  • Veglegt hlaðborð
Á mann
frá 7.590 kr.

Drykkjamiðar gilda fyrir 500 ml bjór, vínglas eða víngos. Aukadrykkjamiðar: 1.500 kr. (1) eða 2.800 kr. (2). Hópefli með stjórnanda sem heldur utan um liðakeppni: 1.500 kr. á mann. Karaoke herbergi má bæta við alla pakka.

Sjá verð eftir dögum og tíma
DagurTímiPíla & drykkir 1 klstPíla & drykkir 2 klstPíla & hlaðborðPíla, drykkir & hlaðborð
Mánudagur16-183.1903.5904.6907.590
18-223.9904.8906.1908.990
22-233.1903.590--
Þriðjudagur16-183.1903.5904.6907.590
18-223.9904.8906.1908.990
22-233.1903.590--
Miðvikudagur16-193.9904.8906.1908.990
19-224.2905.4906.8909.790
22-233.1903.590--
Fimmtudagur16-173.9904.8906.1908.990
17-224.2905.4906.8909.790
22-233.9904.890--
Föstudagur15-173.9904.8906.1908.990
17-234.4905.7907.1909.990
23-003.9904.890--
Laugardagur12-153.9904.8906.1908.990
15-234.4905.7907.1909.990
23-003.9904.890--
Sunnudagur12-163.1903.5904.6907.590
16-233.9904.8906.1908.990

Verð á mann í krónum með VSK. Verðið miðast við hvenær hópurinn byrjar. Hlaðborð er ekki í boði seint á kvöldin.

Fyrirspurn

Reiknaðu dæmið

Veldu dag, tíma, pakka og fjölda og sjáðu áætlað verð. Fyrirspurnin fer beint til hópateymisins og við svörum með staðfestingu á lausum tíma. Bókunin er ekki staðfest fyrr en svar berst.

Færri en 12? Bókaðu spjöld beint og bættu við mat og drykk í bókuninni.

45 eða fleiri, eða viljið þið rými út af fyrir ykkur? Skoðaðu salina í Austurbæjarbíói.

Gestir skála á Bullseye
Hópurinn
Á mann-
Áætlað samtals-

Veldu dag, tíma og pakka til að sjá áætlað verð. Með VSK, endanlegt verð kemur í staðfestingu.

Tengiliður

Við notum upplýsingarnar bara til að svara fyrirspurninni og deilum þeim aldrei.

Spurt og svarað

Hvernig bóka ég fyrir stóra hópa?

Fyrir færri en 12 er einfaldast að bóka píluspjöld og karaoke herbergi beint á vefnum. Fyrir 12 eða fleiri er best að fylla út formið hér á síðunni svo við getum fundið besta pakkann fyrir ykkur. Þið getið líka sent okkur línu á hopar@bullseye.is.

Getum við greitt með reikningi?

Já, fyrirtæki og stofnanir geta greitt með reikningi eða fengið sendan rafrænan reikning. Látið okkur vita í fyrirspurninni svo við getum sett það rétt upp.

Er hægt að breyta fjölda í hópnum eftir bókun?

Já, endanlegum fjölda (og þar með matarpöntun) má breyta með allt að 48 klukkustunda fyrirvara. Eftir það er bókunin bindandi, þar sem eldhúsið hefur undirbúið sig og spjöld eða herbergi verið tekin frá.

Hvað ef við mætum of seint?

Við mælum með að mæta 10-15 mínútum áður en leiktíminn byrjar til að panta drykki og græja pílurnar. Ef þið mætið of seint styttist leiktíminn sem því nemur, þar sem aðrar bókanir gætu verið á eftir.

Getum við verið með prívat herbergi eða svæði?

Karaoke herbergin eru alveg prívat. Píluhópar fá spjöld sem liggja saman svo allur hópurinn sé á sama svæði. Viljið þið svæði alveg út af fyrir ykkur er hægt að leigja sal, og þá fylgja öll píluspjöldin.

Hvað með drykkjamiða?

Mörgum hópum finnst þægilegt að kaupa drykkjamiða fyrirfram sem gestir skipta fyrir 500 ml bjór, vínglas eða víngos á barnum. Það einfaldar uppgjörið fyrir þann sem skipuleggur.

Eruð þið með vegan eða glúteinlausan mat?

Við erum með vegan og grænmetisrétti. Glúteinlaust er erfiðara, látið okkur vita í fyrirspurninni og við skoðum hvað hægt er að gera.

Hvað er munurinn á klassískri pílu og partí pílu?

Klassísk píla er leikurinn sem þú þekkir úr sjónvarpinu, til dæmis 301 eða 501: nákvæmni og að ná skorinu niður í núll. Partí píla snýst um fjörið: tölvustýrðir leikir með grafík þar sem þið spilið fótbolta, golf eða reynið að rífa niður kastala. Engin talnaglöggni nauðsynleg.

Hvað kostar að leigja sal?

Salirnir eru í Austurbæjarbíói og verðlistann finnur þú á austurbaejarbio.is. Í salarleigu er aðgangur að öllum píluspjöldum innifalinn. Við mælum með sal fyrir 45 eða fleiri.